Ég heyri í þér
Þú ert í næsta herbergi
Hrjótandi - umlandi
Þú sefur vært
Ætli þér sé kalt?
Ég bíð aðeins með að standa upp
til að breiða yfir þig sængina
Sem er dottin á gólfið
Ætla fyrst að klára drykkinn minn og
hugsa um fortíðina sem aldrei varð
Fortíðina sem ég hef búið til
í huga mínum. Þar sem
ég er hetjan sem bjargar deginum
Ekki þessi vesæli maður
sem ég sé í speglinum
Fingurnir mínir
eru dofnir af kulda
Glugginn er opinn og
vindurinn á greiða leið inn
Ég fer inn til þín eftir smá stund,
get allt eins klárað úr flöskunni
Ætli þér sé kalt?
Ég finn hvernig augnlokin verða þyngri
Flaskan tóm
Finn ekki fyrir tánum núna
Ætli þér sé kalt?
Þú ert í næsta herbergi
Hrjótandi - umlandi
Þú sefur vært
Ætli þér sé kalt?
Ég bíð aðeins með að standa upp
til að breiða yfir þig sængina
Sem er dottin á gólfið
Ætla fyrst að klára drykkinn minn og
hugsa um fortíðina sem aldrei varð
Fortíðina sem ég hef búið til
í huga mínum. Þar sem
ég er hetjan sem bjargar deginum
Ekki þessi vesæli maður
sem ég sé í speglinum
Fingurnir mínir
eru dofnir af kulda
Glugginn er opinn og
vindurinn á greiða leið inn
Ég fer inn til þín eftir smá stund,
get allt eins klárað úr flöskunni
Ætli þér sé kalt?
Ég finn hvernig augnlokin verða þyngri
Flaskan tóm
Finn ekki fyrir tánum núna
Ætli þér sé kalt?