Gunnar Karel Masson
  • Home
  • About
    • Bio
    • C.V.
    • List of Works
  • Works
    • Music >
      • Audio
      • Video
      • Scores >
        • Brim
        • As we walk we sleep
        • Senza di te
        • Followings IV
        • Þrá skalt efla
        • Jó og Júpiter
        • Caligo
        • Mögu Legri
    • Installations >
      • Pansonicon 1
    • Writings >
      • Ljóð/Poems >
        • er ég brandari
        • fokk hvað ég nenni engu
        • loftlínur
        • ætli þér sé kalt?
        • pakkinn
      • B. A. Thesis (icelandic)
      • Simplexity (english)
      • Pansonicon thesis - excerpt (danish)
  • Contact
  • FFW(D)?
  • Óþekkt
  • Fékkstu pakkann frá mér?
  • Nei, ég ætlaði..æi..skiptir ekki máli
  • Kom hann ekki til þín?
  • Jú ég gleymdi bara að sækja hann, gætirðu sent hann aftur?
  • Svosem, er reyndar búinn að reyna að senda þér þessa hluti nokkrum sinnum áður, viltu ekki fá þá?
  • Jújú ég gleymi bara alltaf að sækja pakkann, þú veist hvernig það er..
  • Hvað meinarðu?
  • Æi, bara lífið
  • Er lífið að stoppa þig í því að sækja pakkana?
  • Já, eða nei, æi það er svo flókið eitthvað, en ég lofa að ég sæki hann næst
  • Lofarðu?
  • Já ég lofa
  • Allt í lagi, þetta verður í síðasta skipti sem ég sendi þér þessa hluti - þú baðst um þá til að byrja með
  • Ég veit, ég gleymi bara alltaf að fara niður á pósthús, þú veist hvernig ég er
  • Nei, ég veit það eiginlega ekki, finnst ég ekki þekkja þig lengur
  • Þekktirðu mig nokkurn tímann?
  • Ef til vill ekki
 
(ÞÖGN)

  • Viltu að ég bæti einhverju í pakkann?
  • Nei, hann er fínn eins og hann er
  • Ertu viss um að þú þurfir þessa hluti?
  • Já alveg 100% viss
  • Ónýtan snúrusíma frá ömmu?
  • Já, hann er mikilvægastur
  • Hvað ætlarðu að gera við hann?
  • Horfa á hann
  • Ha?
  • Horfa á hann á náttborðinu mínu, kannski hringir hann
  • Þú veist að hann er bilaður
  • Maður veit aldrei
  • Er eitthvað sem þú vilt segja mér?
  • …nei..ég held ekki
  • Ertu einmana?
  • Alltaf
  • ….já….ég skil
  • En þú?
  • Oftast
  • Ekki alltaf?
  • Ekki alveg
  • Hvenær ertu ekki einmana?
  • Þegar ég sef, og þegar ég veit ekki af sjálfum mér
  • Viltu sofa núna?
  • Alltaf
  • Að eilífu?
  • Að eilífu
  • Komdu þá….
 
(ÞÖGN)